ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Björgunarsveitir komnar að konunni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:15 › 28. mars 2009

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú komnar að gönguhóp sem hafst hefur við efst í Skessuhorni frá því klukkan 14 í dag. Verið er að undirbúa flutning fólksins niður af fjallinu en bera þarf konuna sem slasaðist nokkur hundruð metra í mjög erfiðum aðstæðum, snjóflóðahættu og ísingu til að koma henni í snjóbíl.

Samkvæmt nýjustu upplýsingum er líðan konunnar stöðug og aðrir í hópnum eru kaldir og þrekaðir. Gert er ráð fyrir að nokkurn tíma taki að koma fólkinu til byggða. Um 120 björgunarsveitamenn hafa tekið þátt í aðgerðum í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.