ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

„Aldrei séð verra sifjaspellsmál“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:21 › 28. mars 2009
Mongelli er nú í haldi lögreglu.

Mongelli er nú í haldi lögreglu.

Pietro Forno, aðalsaksóknari lögreglunnar í Tórínó á Ítalíu, segir að mál Ítalans Michele Mongelli sé versta sifjaspellsmál sem hann hefur séð. Málið þykir minna um margt á mál Austurríkismannsins Josef Fritzl, sem dæmdur var í ævilangt fangelsi á dögunum. Mongelli er grunaður um að hafa haldið dóttur sinni fanginni í íbúð sinni í 25 ár og nauðgað henni ítrekað.

Mongelli er nú í haldi lögreglu en auk þess er sonur hans grunaður um að hafa nauðgað stúlkunni, sem samkvæmt ítölskum fjölmiðlum heitir Laura. Hún er 34 ára gömul í dag en grunur leikur á að henni hafi fyrst verið nauðgað þegar hún var níu ára gömul. Henni var haldið í herbergi með engu rafmagni og fékk einungis að yfirgefa herbergið í fylgd með föður sínum. Grunur leikur á að feðgarnir hafi einnig misnotað fjóra aðra meðlimi fjölskyldunnar.

Pietro Forno segir að jafnvel harðsnúnustu saksóknarar embættisins hafi átt erfitt með að hlusta á lýsingar Lauru. „Ég held ég hafi aldrei séð verra sifjaspellsmál,“ segir Forno.

Samkvæmt breska götublaðinu The Sun virðist Mongelli hafa talið það hafa verið rétt sinn að misnota dóttur sína kynferðislega. Stúlkan er sögð hafa sloppið úr haldi fyrir fimmtán árum og haft samband við lögreglu. Faðirinn hafi hinsvegar náð að telja lögreglunni trú um að hún væri klikkuð.

Eiginkona Mongelli sagði í gær við ítalska fjölmiðla að maður sinn hefði ekkert slæmt á samviskunni. „Þetta eru allt lygar. Hann hélt henni innandyra vegna þess að hann hafði áhyggjur af henni,“ sagði hún.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.