Forsetabifreið Ólafs Ragnars stóð samkvæmt vitnum í einar 6 mínútur í stæði ætlað hreyfihömluðum. Forsetahjónin sinntu einkaerindum á meðan.
Meðfylgjandi myndir náðust af forsetabifreið Ólafs Ragnars Grímssonar í Bankastræti um fimmleytið í gærdag. Þar sést hvar 11,7 milljón króna Lexus LS600h lúxusbifreið forsetans er lagt í stæði fyrir fatlaða.
Samkvæmt vitnum í Bankastræti í gær beið einkabílstjóri í stæðinu í allt að sex mínútur á meðan forsetahjónin sinntu einkaerindum í nærliggjandi verslunum.
Lögin skýr
Guðbrandur Sigurðsson hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir lögin skýr hvað varðar lagningu í stæði ætluð fötluðum. Það á enginn að leggja í stæði fatlaðra án þess að hafa til þess heimild í formi P-merkis sem sýnilegt er í framrúðu bifreiðarinnar. Í þessu tilfelli hefði verið hægt að sekta forsetann með svokölluðu C-gírógjaldi sem rennur í bílastæðasjóð Reykjavíkur.
Þá bendir Guðbrandur á að til standi að hækka það gjald sem tekið er gerist menn sekir um að misnota stæði fatlaðra.
Algjör lúxus
Ólafur Ragnar Grímsson fékk forsetabifreiðina afhenta í byrjun júlí árið 2007 frá forstjóra Toyota í Evrópu. Forsetaembættið keypti bifreiðina með talsverðum afslætti en hún kostaði engu að síður 11,7 milljónir króna. Verðlistaverð lúxusbifreiðarinnar, sem búin er svonefndu hybrid-kerfi, er um 22,6 milljónir króna.
Ritara forsetans var ekki kunnugt um málið þegar spurst var fyrir um það.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 


Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
