Björgvin segir að sameining Samfylkingar, Framsóknar, Frjálslyndra og Vinstri grænna sé það sem koma skal. Mynd DV
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, telur að sameining Samfylkingar, Framsóknar, Frjálslyndra og Vinstri grænna sé það sem koma skal. „Að því eigum við að stefna. Kosningabandalagi allra flokka frá miðju og til vinstri. Bandalagi sem síðar gæti orðið að einum stórum félagshyggjuflokki,“ segir Björgvin á bloggsíðu sinni á Pressunni.
Björgvin gerir frumvarp Kristins H. Gunnarssonar sem hann flutti á Alþingi fyrir skemmstu um kosningalög að umtali. Þar lagði Kristinn til að flokkar geti myndað bandalög með sjálfstæðum listum en öll atkvæði þeirra yrðu talin saman sem um einn flokk væri að ræða. „Þetta mál styð ég heils hugar og tel að geti orðið til þess að mynda fyrir hverjar kosningar skýra valkosti um stjórnarmyndun,“ segir Björgvin.
Björgvin segir að núverandi fyrirkomulag sé afleitt. Flokkar segi eitt og geri annað. „Höfuðfjendur ganga til samstarfs sem á sér litla raunverulega lífsvon og kjósendur hafa óskýra mynd af því hvað þeir raunverulega eru að kjósa yfir sig.“
Björgvin segir að litlar líkur séu á slíku bandalagi fyrir vorið. Þó sé aldrei að vita. „En að þessu eigum við að stefna og vinna hörðum höndum í stað þess að grafa okkur dýpra ofan í skotgrafirnar sem er helsta von íhalds og hægri manna á því að komast aftur til valda og taka til óspilltra málanna við að byggja upp skýjaborgir frjálshyggju og ójafnvægis,“ segir hann.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun