Kviðdómur í Kaliforníu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Raymond Lee Oyler, sem ákærður hefur verið fyrir að myrða fimm slökkviliðsmenn árið 2006, eigi skilið að deyja. Oyler ber ábyrgð á nokkrum skógareldum sem geysuðu í Riverside sýslu árið 2006 en fimm slökkviliðsmenn létust við störf sín.
Það tók kvidómendur minna en einn dag að komast að þessari ákvörðun sinni. Þegar hún var lesin upp í dómsal í dag sagði dóttir Oylers að faðir sinn hafi aldrei ætlað að vinna neinum mein. Ákæran á hendur Oyler er í fjölmörgum liðum. Auk þess að vera ákærður fyrir morðin á slökkviliðsmönnunum er hann einnig ákærður fyrir að vera valdur að 20 eldsvoðum.
Endanlegur dómur í málinu verður kveðinn upp þann þriðja apríl næstkomandi. Verjandi mannsins hefur farið fram á að skjólstæðingur sinn verði dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Oyler er 38 ára gamall.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu