ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Tvíburabræður sluppu með skrekkinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:52 › 19. mars 2009
Ránið var framið í KaDeWe í miðborg Berlínar.

Ránið var framið í KaDeWe í miðborg Berlínar.

Þýskum tvíburabræðum, sem grunaðir voru um að stela skartgripum fyrir um 900 milljónir króna, hefur verið sleppt úr haldi. Ástæðan er sú að lögreglu hefur ekki tekist að sanna hvor þeirra framdi ránið.

Ránið sem um ræðir var framið í þýska stórmarkaðnum KaDeWe í Berlín en ræningjarnir komust inn í húsið í gegnum þakglugga og létu sig síga niður á gólf verslunarinnar. Þar létu þeir til skarar skríða og höfðu á brott með sér gríðarlegt magn af skartgripum.

Það var svo í vikunni sem dómur var kveðinn upp í málinu. Bræðurnir skyldu sýknaðir þrátt fyrir það að ljóst væri að annar þeirra hafi tekið þátt í ráninu. „Af þeim sönnunargögnum sem liggja fyrir, er hægt að álykta að minnsta kosti annar bræðranna hafi tekið þátt í glæpnum en ekki hefur tekst að sýna fram á hvor þeirra það var,“ segir í dómsorðum.

Bræðurnir voru handteknir tveimur vikum eftir ránið og tekin voru DNA sýni. En sýnin úr mönnunum þóttu of lík þannig að ekki var hægt að segja til um með fullnægjandi hætti hvor þeirra það var. Lögregla heldur áfram rannsókn á málinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.