ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Trúin og lífsbaráttan

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:26 › 19. mars 2009

Niðurstöður bandarískrar rannsóknar benda til að strangtrúaðir virðist vilja að læknar geri allt sem í þeirra valdi stendur til að halda þeim á lífi. Í rannsókninni var fylgst með 345 sjúklingum með banvænt krabbamein þar til yfir lauk.

Þeir sem báðust fyrir reglulega voru þrisvar sinnum líklegri til að þiggja meðferð sem lengdi lífdaga þeirra, en þeir sem ekki treystu á trúna. Yfir þrjátíu prósent aðspurðra sögðu að trúin „hefði mesta vægið í lífsbaráttunni“.

Þeir sem stóðu að rannsókninni, sem gerð var af hálfu Dana-Faber-krabbameinsstofnunarinnar, komust að því að minnstar líkur voru á að þeir sem báðust reglulega fyrir skrifuðu undir fyrirmæli um að ekki mætti reyna að endurlífga þá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.