ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Þrjú mótorhjóla- slys í dag

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:33 › 19. mars 2009

Tvö mótorhjólaslys urðu á höfuðborgarsvæðinu með skömmu millibili um níu leytið í kvöld. Annarsvegar varð slys á Víkurvegi við Egilshöll og hinsvegar við Kaplahraun í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi á slysa- og bráðadeild Landspítalans var annar mannanna útskrifaður en hinn er enn á slysadeild og er ástand hans sagt „þokkalegt.“

Þá varð mótorhjólaslys á Bústaðavegi í dag en ekki liggja fyrir upplýsingar um meiðsl ökumannsins. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni virðist vorið vera komið. Hann bendir þó að götur geti verið varasamar þar sem þær eru enn rykugar og sandugar eftir veturinn. Því borgi sig að fara varlega.

Þá var ekið á barn í Árbæ í dag en að sögn varðstjóra leikur grunur á að barnið hafi beinbrotnað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.