ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Stjórnarflokkarnir með meirihluta

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
18:17 › 19. mars 2009
Stjórnarflokkarnir fengju 38 þingmenn af 63.

Stjórnarflokkarnir fengju 38 þingmenn af 63.

Stjórnarflokkarnir fengju 38 þingmenn ef kosið yrði nú og fengju samanlagt nærri 56 prósenta fylgi. Þetta er niðurstaða nýrrar fylgiskönnunar Capacent sem gerð var fyrir RÚV og Morgunblaðið.

Samkvæmt fréttum RÚV í kvöld er Samfylkingin stærsti flokkurinn og fengi 31,2 prónsenta fylgi og bætir við sig um 2 prósentustigum frá síðustu könnun Capacent. Sjálfstæðisflokkurinn er með 26,5 prósenta fylgi og tapar um 2 prósentustigum frá síðustu könnun. VG fengi 24,6 prósent og Framsóknarflokkurinn 11,3 prósent. Aðrir flokkar deila með sér um sex prósentum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.