Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Formenn innan Starfsgreinasambandsins skora á HB Granda að láta launahækkanir upp á 13.500 krónur koma strax til framkvæmda.
Þetta var samþykkt á fundi formannanna í dag. Í ályktun fundarins segir meðal annars að sú ávörðun stjórnar HB Granda, að leggja til að greiða hluthöfum 8 prósenta arð sé forkastanleg og óásættanleg með öllu í því ástandi sem nú ríki.
Formannafundurinn hvetur þau fyrirtæki sem standa vel, að láta launataxtahækkanirnar koma til framkvæmda strax. „Launafólk á Íslandi hefur ekki vikist undan því að bera ábyrgð í samfélaginu. Á sama hátt krefst formannafundurinn þess að atvinnulífið í landinu, með samtök sín í farabroddi, axli einnig samfélagslega ábyrgð.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun