Sigurjón segir að þeir Sveinn Andri og Franklín hafi ekkert átt í glímuna við Jón Magnússon. Mynd Stefán Karlsson
Hæstiréttur sýknaði í dag þá Sigurjón M. Egilsson og Trausta Hafsteinsson af kröfum Franklín Stiner (áður Steiner) vegna ummæla sem birtust í Blaðinu um að Franklín hefði verið umsvifamikill í fíkniefnasölu. Sigurjón var þá ritstjóri Blaðsins en Trausti blaðamaður.
Franklín fór fram á að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og honum yrðu dæmdar skaðabætur vegna þeirra. Hæstiréttur mat það hinsvegar svo að ekki væri hægt að fallast á að ummælin væru uppspuni þar sem Franklín hafði verið dæmdur fyrir brot gegn fíkniefnalögum.
Á bloggsíðu sinni fagnar Sigurjón þessum dómi í stuttri færslu sem ber fyrirsögnina: „Steinerinn steinlá – aftur“. „Það fór sem mig grunaði að félagarnir Franklín Steiner og Sveinn Andri Sveinsson áttu ekkert erindi í glímuna við Jón Magnússon. Fullkomið tap bæði í héraði og fyrir Hæstarétti. Þetta brölt þeirra tvímenninga gegn okkur frændunum, mér og Trausta Hafsteinssyni, hefur kostað slatta af peningum. Franklín skuldar Jóni tæpa milljón auk vaxta og sennilega kostar Sveinn Andri svipað. Það er því eins gott að heppnin í spilakössunum yfirgefi ekki Steinerinn,“ segir Sigurjón.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna