Moskva státaði á síðasta ári af flestum milljarðamæringum. Nú er öldin önnur og bæði New York og Lundúnir hafa skotið Moskvu ref fyrir rass. Nýr listi Forbes yfir ríkustu menn í heimi sýnir að allt er í heiminum hverfult og samdráttur í verslun með munaðarvörur og vestræna tískuhönnun undirstrikar að það er af sem áður var í Rússlandi.
Því er spáð að vaxandi fjöldi rússneskra oligarka muni brátt veðsetja snekkjur sínar og selja þoturnar, en áætlað er að um 369 milljarðar dollara hafi gufað upp af samanlögðum auði þeirra í kjölfar verðlækkunar á olíu, en verð á tunnu hefur lækkað um meira en eitt hundrað bandaríkjadali síðastliðna níu mánuði.
Listi Forbes fyrir árið 2009 yfir auðugustu menn heims kom út í síðustu viku og samkvæmt honum hefur rússneskum milljarðamæringum fækkað úr áttatíu og sjö niður í þrjátíu og tvo, miðað við síðasta ár.
Óhætt er að segja að Moskva beri skarðan hlut frá borði miðað við New York. Höfuðborg Rússlands státar nú af aðeins tuttugu og sjö milljarðamæringum og hefur tapað titlinum „höfuðborg milljarðamæringa“ til New York sem á, samkvæmt lista Forbes, fimmtíu og fimm milljarðamæringa. En það er ekki svo gott að Moskva sé í öðru sæti því Lundúnir eiga einum milljarðamæringi fleiri en Moskva, eða tuttugu og átta.
Sviptingar hjá milljarðamæringum
Áljöfurinn Oleg Deripaska, sem á síðasta ári var níundi ríkasti maður heims og auðugastur Rússa, hefur þurft að horfa upp á auð sinn verða að nær engu. Vegna kreppunnar hefur hann tapað 24,5 milljörðum bandaríkjadala og á nú um stundir „aðeins“ 3,5 milljarða.
Eftir að kreppan skall á hafa mörg fyrirtækja hans reynt eftir fremsta megni að halda sér á floti. RusAl skuldar bönkum um fjórtán milljarða bandaríkjadala og GAZ Group skuldar um 1,3 milljarða bandaríkjadala. Orðrómur er á kreiki um að heildarskuldir Basic Element, móðurfélags Deripaskas, séu um tuttugu og átta milljarðar bandaríkjadala.
En maður kemur í manns stað og Mikhail Prokhorov, formaður Polyus Gold, hefur tekið stöðu ríkasta manns Rússlands. Prokhorov, hefur líkt og Oleg Deripaska, séð auð sinn snarminnka. Árið 2008 var hann metinn á 19,5 milljarða bandaríkjadala og var í 24. sæti lista Forbes yfir ríkustu menn heims. Nú er Prokhorov metinn á 9,5 milljarða dala.
Fáir sleppa með skrekkinn
Eigandi breska knattspyrnufélagsins Chelsea, Roman Abramovich, er annar auðugasti maður Rússlands. Hann er metinn á 8,5 milljarða dala, samkvæmt lista Forbes, og hefur tapað um fimmtán milljörðum síðan 2008, en þá var hann metinn á 23,5 milljarða dala.
Á meðal annarra oligarka sem berjast við að bjarga auðæfum sínum má nefna Kirill Pisarev og félaga hans Yuri Zhikov, sem hvor um sig tapaði um níutíu prósentum auðs síns þegar verð á hlutabréfum í þróunarfyrirtæki þeirra, PIK, snarféll.
Yelena Baturina, eigandi byggingafyrirtækisins Intenko, berst í bökkum og hefur hún beðið stjórnvöld um fjárhagslega aðstoð. Baturina hefur tapað 3,3 milljörðum af 4,2 milljarða auði sínum.
Einnig má nefna til sögunnar Igor Yakovlev sem hefur tapað 1,6 milljörðum dala af 1,8 milljörðum. Yakovlev hefur misst stjórnartaumana á Eldorado, stærsta smásölufyrirtækis Austur-Evrópu á sviði heimilis- og rafmagnstækja, sem var metið á 3,5 milljarða dala fyrir ári. Yakovlev var með fleiri járn í eldinum en fyrirtæki hans, Banana Mama sem seldi barnafatnað, varð gjaldþrota.
Skuggi kreppu á götum Moskvu
Fjórum áratugum eftir að faðir hennar samdi Back in the USSR lokar Stella McCartney verslunum sínum í Moskvu. Óhætt er að segja að nú sé hún Snorrabúð stekkur því fleiri tískuhönnuðir fylgja fordæmi Stellu, þeirra á meðal Lanvin og Alexander McQueen. Verslanir sem áður voru troðfullar út úr dyrum af pelsklæddum Rússum sem börðust um að kaupa það nýjasta frá Vesturlöndum ku nú standa auðar.
Það er af sem áður var þegar auðugir Moskvubúar eyddu olíudölum sínum í munaðarverslunum, því innistæður þeirra minnkuðu samfara lækkandi heimsmarkaðsverði á olíu. Það er víst ekki óalgengt að fleiri afgreiðslumenn séu í tískubúðunum en viðskiptavinir, auk þess sem verulega hefur dregið úr umferð á götunum.
En utan Moskvu og Pétursborgar blasir við öllu alvarlegra vandamál en verslunargeta nýríkra Rússa. Í Rússlandi er að finna fjölda borga þar sem stærstur hluti íbúa er í vinnu hjá einu fyrirtæki, til dæmis bílaframleiðanda. Það liggur í hlutarins eðli að ef viðkomandi fyrirtæki á í fjárhagsörðugleikum missir stór hluti íbúa borgarinnar vinnuna.
Með fjöldaatvinnuleysi eykst hættan á samfélagslegri ólgu og nú þegar hefur komið til mótmælaaðgerða fólks sem misst hefur vinnuna eða verið lækkað í launum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu