ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

„Kvikindisleg“ stýrivaxtalækkun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:42 › 19. mars 2009
Sigmundur veltir því fyrir sér hvaða árangur hafi orðið af þeim breytingum sem áttu sér stað í Seðlabankanum.

Sigmundur veltir því fyrir sér hvaða árangur hafi orðið af þeim breytingum sem áttu sér stað í Seðlabankanum. Mynd: DV

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ákvörðun Seðlabankans að lækka stýrivexti úr átján prósent í sautján prósent jaðri við að vera kvikindisleg. Hann veltir því fyrir sér hvaða árangur hafi orðið af þeim breytingum sem áttu sér stað í Seðlabankanum í síðasta mánuði.

„Á Vesturlöndum er rík áhersla lögð á sjálfstæði Seðlabanka. Á Íslandi gripu stjórnvöld hins vegar inní starfsemi bankans með afgerandi hætti. Það var réttlætt á grundvelli alvarlegs ástands í efnahagsmálum. Vissulega var alvarlegt ástand í efnahagsmálum en maður veltir því fyrir sér hvaða árangur varð af breytingunum,“ segir Sigmundur á bloggsíðu sinni.

Sigmundur segir að við þær aðstæður sem nú eru ríkjandi í hagkerfinu sé fráleitt að halda vöxtum svo háum. Réttlæting Seðlabankans sé enn sem fyrr verðbólga og gengi krónunnar. „Um allan heim hafa seðlabankar lækkað vexti hratt og mikið til að reyna að koma hagkerfinu í gang. Ísland, sem þarf öðrum fremur á því að halda að endurræsa hagkerfið, býr hins vegar við kæfandi okurvexti [...] Íslensk stjórnvöld þurfa að lýsa því yfir að það sé eindreginn vilji þeirra að vextir verði lækkaðir verulega og hinir nýju stjórnendur Seðlabankans verða að sýna að ráðning þeirra hafi verið til einhvers.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.