Nú er komin fram í dagsljósið mynd sem á að sýna Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, frá tímum hans sem njósnari fyrir KGB, leyniþjónustu Rússlands.
Á myndinni, sem tekin er árið 1989, er Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev en Pútín virðist vera í gervi forvitins ferðamanns með myndavél um hálsinn. Það var Pete Souza, sem nú er opinber ljósmyndari Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, sem tók myndina.
Í viðtali við Sky News, segist Souza, muna vel eftir þessum degi og þá sérstaklega hvað ferðamaðurinn forvitni hafi spurt Reagan hnitmiðaðra spurninga. Meðal annars spurðist hann fyrir um stöðu mannréttindamála í Bandaríkjunum. Souza segist síðan hafa fengið staðfestingu á því að ferðamaðurinn forvitni hafi verið enginn annar en Vladímír Pútín.
Smelltu hér til að sjá myndina og nánari umfjöllum Sky News um málið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu