Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Tveir karlar á þrítugsaldri, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld í tengslum við rannsókn á kannabisræktun á Kjalarnesi, eru nú lausir úr haldi lögreglu. Í umræddu máli fann lögreglan 621 kannabisplöntu í iðnaðarhúsnæði á Melunum ofan Vesturlandsvegar, norðan Leiruvegar og Varmadalsvegar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Plönturnar voru á ýmsum stigum ræktunar en á sama stað var einnig lagt hald á tæplega 5 kíló af marijúana og svipað magn af kannabislaufum. Af aðstæðum innandyra mátti ráða að um afar umfangsmikla kannabisræktun var að ræða og hefur lögreglan ekki áður séð neitt í líkingu við þetta.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun