ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Lögreglan fjarlægði pókerborð af sportbar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:32 › 19. mars 2009
Haukur Vagnsson undrast ákvörðun lögreglunnar að fjarlægja pókerborðin af sportbarnum.

Haukur Vagnsson undrast ákvörðun lögreglunnar að fjarlægja pókerborðin af sportbarnum. Mynd Photos

Lögreglan á Vestfjörðum fjarlægði pókerborð af sportbarnum Vaxon í Bolungarvík fyrir skömmu. Eigandi staðarins, Haukur Vagnsson, segir málið ótækt því lögreglan hafi ekki haft neina sönnun fyrir því að fjárhættuspil hafi verið stunduð á borðunum.

Frá þessu greinir fréttavefurinn Bæjarins besta á Ísafirði. Í samtali við vefinn bendir Haukur á að fjárhættuspil hafi verið stunduð víða á höfuðborgarsvæðinu án þess að lögregla aðhafist nokkuð. Hann fékk þær skýringar frá lögreglu að ólöglegt væri að vera með borðin inni á staðnum. Haukur segir að lögregla hafi ekki getað vísað á nein lög sem banni honum að hafa slík borð inni á veitingastaðnum.

Jón Fannar Kolbeinsson, fulltrúi sýslumannsins á Ísafirði, segir í samtali við BB að hann geti ekki tjáð sig um málið þar sem það er í rannsókn. Þegar hann var spurður hvers vegna lögreglan í Reykjavík aðhafist ekki vegna auglýstra fjárhættuspila segist Jón Fannar ekki vita hver aðkoma lögreglunnar hafi verið að þeim mótum. Hann segist þó vita af ákveðnum málum þar sem þeir hafi farið inn á mót og komist að því að þriðji aðili hafi ekki verið að hagnast og þá hafi málið fallið niður.

Haukur segist undrast ákvörðun lögreglunnar og veltir fyrir sér hvort lögreglan hafi ekkert betra við tímann að gera en að eltast við pókerborðin á Vaxon. Hann bendir á að í þrígang hafi verið brotist inn hjá sér þar sem þjófarnir hafi haft á brott með sér verðmæti fyrir á aðra milljón króna. Hann hafi hinsvegar ekkert heyrt frá lögreglunni vegna þeirra mála.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.