Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins um þar næstu helgi. Jóhanna segist vera afar þakklát fyrir það traust sem henni hefur verið sýnt og vill hún ekki skorast undan því að leggja sitt af mörkum við að leiða flokkinn í einum mikilvægustu kosningum í sögu lýðveldisins.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Jóhanna sendi frá sér. „Við jafnaðarmenn fengum það hlutskipti að leiða vinstristjórn eftir einhver harkalegustu áföll sem íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir. Verkefnið er hins vegar rétt að hefjast. Brýnt er að því verði fylgt eftir af festu og að við stjórn landsins fari saman ábyrg efnahagsstjórn og félagslegar áherslur. Því tel ég áríðandi að Samfylkingin gegni áfram lykilhlutverki í endurreisnarstarfinu, með jafnræði og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.
„Á þeim viðsjárverðu tímum sem nú eru á Íslandi er nauðsynlegt að allir leggi hönd á plóg og sem forsætisráðherra get ég ekki gert minni kröfur til sjálfrar mín en annarra í þeim efnum. Með framboði mínu til formanns Samfylkingarinnar lýsi ég yfir að ég er reiðubúin að leiða flokkinn og ríkisstjórn undir hans forystu í því veigamikla uppbyggingarstarfi sem nú er hafið,“ segir ennfremur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna