ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Flóðbylgjuviðvörun í kjölfar jarðskjálfta

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:57 › 19. mars 2009
Mikið öskufall hefur orðið í kjölfar eldgossins.

Mikið öskufall hefur orðið í kjölfar eldgossins.

Jarðskjálfti upp á 7,9 á Richter reið yfir Tonga eyjaklasann í Kyrrahafi í kvöld. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út í kjölfarið og nær viðvörunin meðal annars til Fijieyja, Samóaeyja og Amerísku Samóaeyjanna.

Ekki hafa borist fregnir af manntjóni en jarðskjálftinn varð klukkan 6.17 að morgni, eða um kvöldmatarleytið að íslenskum tíma. Upptök skjálftans voru um 213 kílómetrum suðaustur af eyjunni Nuku‘alofa sem tilheyrir Tonga.

Miklar jarðhræringar hafa verið við Tonga eyjaklasann undanfarna daga en í gær hófst neðansjávareldgos í klasanum. Myndband af gosinu má sjá hér að neðan:




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.