ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Dauð mús í miðri salami rúllu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:04 › 19. mars 2009
Luca trúði vart sínum eigin augum þegar hann kom auga á músina í miðri rúllunni.

Luca trúði vart sínum eigin augum þegar hann kom auga á músina í miðri rúllunni. Mynd Ananova

Hinum rúmenska Nelu Luca var heldur brugðið þegar hann skar niður salami rúllu sem hann hafði keypt sér. Í ljós kom að dauð mús var í miðri rúllunni.

„Ég trúði þessu ekki. Ég fer alltaf varlega þegar ég kaupi í matinn og salamíið leit fullkomlega út að utan. En í miðjunni var dauð mús,“ segir Luca sem var búinn að borða hluta af rúllunni. Framleiðandi vörunnar, Tabco Campofrio Romania, þarf að borga sekt eftir að málið rataði inn á borð heilbrigðisyfirvalda.

Ovidiu Wenchz, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að flest bendi til þess að einhver hafi komið músinni fyrir í rúllunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.