ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Slapp við 850 milljóna kúlulán

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:45 › 18. mars 2009

Eignarhaldsfélag í eigu Finns Sveinbjörnssonar, þáverandi bankastjóra Icebank og núverandi bankastjóra Kaupþings, fékk 850 milljóna króna kúlulán frá nokkrum bönkum til að kaupa hlutabréf í Icebank árið 2007. Finnur seldi félagið þegar honum var sagt upp störfum sem bankastjóra Icebank í árslok 2007. Tæplega 16 milljóna króna skuld vegna vaxtakostnaðar var skilin eftir inni í félaginu.

Finnur staðfestir þetta í samtali við DV. Kúlulánið fékk hann frá SPRON, BYR, Sparisjóðnum í Keflavík og Sparisjóð Mýrarsýslu, að sögn Finns. Hann segir að SPRON og BYR hafa verið stærstu lánveitendurna á bak við kúlulánið en sparisjóðirnir tveir seldu samtals rúmlega 45 prósent hlut sinn í bankanum þegar Finnur fékk kúlulánið. Hluti þessa eignarhluta var seldur til Finns og annarra lykilsstjórnenda í Icebank.

Aðspurður hvort Finnur myndi þiggja slíkt tilboð ef það stæði honum til boða í dag segir bankastjórinn að hafa megi margar skoðanir á slíkum viðskiptum. „Ég myndi sennilega hugsa mig vandlega um ef mér byðist að kaupa hlutabréf í fjármálafyrirtæki núna því það er svo mikil óvisa á fjármálamörkuðum,“ segir Finnur. Svo segir Finnur um lánið: „Við getum alveg verið hreinskilnir við hvor annan. Auðvitað hefur margt breyst í þjóðfélaginu: Stemningin, viðhorf og gildismat í samfélaginu er öðruvísi en áður. Ég held að við getum bara horft í eigin barm og viðurkennt hreinskilningslega að við hugsum öðruvísi og metum hlutina öðruvísi heldur en var,“ segir Finnur.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.