ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Icesave var stefnt á ellefu lönd til viðbótar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:20 › 17. mars 2009

Í uppgjöri Landsbankans í lok júní í fyrra er minnst á 11 lönd sem mögulega nýja markaði fyrir Icesave-innlánsreikninga. Samkvæmt heimildum frá Landsbankanum átti að stofna dótturfélög í kringum starfsemi Icesave í þessum löndum ef boðið hefði verið upp á innlánsreikningana þar. Dótturfélög voru ekki stofnuð í kringum starfsemi Icesave í Bretlandi og Hollandi og því er áætlað að 72 milljarðar króna af útistandandi kröfum vegna Icesave falli á íslenska ríkið.

Samkvæmt heimildum frá Landsbankanum var stefna bankans að búa til dótturfélög utan um Icesave í þeim löndum þar sem bjóða átti upp á reikningana. Þrátt fyrir að þetta hefði verið stefna bankans var ekki búið að búa til dótturfélög utan um starfsemi Icesave í Bretlandi og Hollandi við fall bankans í haust, þrátt fyrir að búið hefði verið að bjóða upp á Icesave í Bretlandi í tæp tvö ár við hrunið og í Hollandi í tæpt hálft ár.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum voru umsóknirnar um að koma starfsemi Icesave í Bretlandi og Hollandi í dótturfélög í ferli, og var verið að vinna að því ötullega rétt fyrir bankahrunið. „Þetta átti allt saman að fara í dótturfélög, þar sem því væri komið við, en það var tímafrekara en við töldum að stofna þau og þess vegna ákváðum við að byrja að bjóða upp á þetta í gegnum útibú í Hollandi og færa starfsemina svo yfir í dótturfélög síðar meir,“ segir starfsmaður Landsbankans sem vill ekki láta nafns síns getið.

Allt um málið í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?