Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir varð í áttunda sæti í gær. Hún segist ekki hafa verið orðin stressuð eftir að fyrstu tölur bárust. Mynd: DV
„Þetta er fjórða sætið á framboðslistanum í öðru hvoru kjördæminu sem er þingsæti í dag. Miðað við skoðanakannanir ættum við að vera með níu þingmenn í Reykjavík. Svo á auðvitað eftir að kjósa,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra. Ásta lenti í áttunda sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík í gær.
Ásta fer því niður um eitt sæti miðað við kosningarnar fyrir tveimur árum. Þegar fyrstu tölur bárust í gær var hún mun neðar á listanum og leit um tíma út fyrir að hún næði ekki mögulegu þingsæti. Inn í þeim tölum voru að vísu einungis tölur úr netkosningunni en seinna meir komu inn tölur úr pappírskosningunni og færðist Ásta þar með upp listann.
Aðspurð hvort Ásta hafi átt von á betri kosningu segir hún að það hafi verið ómögulegt að geta sér til um niðurstöðuna fyrirfram. „Ástandið í samfélaginu er náttúrulega þannig að það gat allt gerst. Ég var ekki inni þegar nettölurnar komu þannig að ég kom inn á pappírnum.“
Ásta segist ekki hafa orðið stressuð þegar fyrstu tölur bárust. „Nei. Ég veit alveg hvaða fólk kýs mig. Það er fólkið sem þarf að treysta á velferðarkerfið og sjálfsagt einhverjir fleiri. En ég veit að ég hef mestan stuðning þar og það var kannski dálítið erfitt fyrir þann hóp að taka þátt í kjörinu. Þetta var varnarsigur og þarna fékk flokksfólkið góða endurnýjum,“ segir Ásta.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð