ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Skaut nágrannann - hélt hann væri api

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:04 › 15. mars 2009
Maðurinn hélt að konan væri api sem væri að stelast í ávaxtatréð.

Maðurinn hélt að konan væri api sem væri að stelast í ávaxtatréð.

Kona ein í Malasíu varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að vera skotin með skammbyssu af nágranna sínum. Einhverra hluta vegna hafði konan ákveðið að týna ávexti úr tré nágranna síns. Nágranninn sá hreyfingu í trénu, náði í byssuna og skaut á tréð.

Það var þó ekki fyrr en hann heyrði öskrin í konunni að hann áttaði sig á því að um manneskju var að ræða en ekki apa eins og hann hélt. Konan var flutt á sjúkrahús vegna áverka sinna. Hún mun vera í stöðugu ástandi en þó ekki lífshættulega slösuð.

Lögreglan rannsakar nú manninn og byssuna en grunur leikur á að hann hafi ekki haft leyfi fyrir henni. Hann gæti átt tveggja ára fangelsi yfir höfði sér fyrir vikið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.