ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Pyntaðir, drepnir og hent í eyðimörkina

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:09 › 15. mars 2009

Lögreglan í mexíkósku borginni Ciudad Juarez fann níu lík í eyðimörk rétt utan við borgina í gær. Um er að ræða lík af sjö körlum og tveimur konum en fólkið hafði allt mátt þola pyntingar. Talið er að einhverjir hinna látnu séu lögreglumenn en lögregluskildir fundust einnig á vettvangi.

1,3 milljónir manna búa í borginni sem er rétt hjá landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna. Mikil ofbeldisbylgja hefur riðið yfir borgina að undanförnu sem talið er að eigi rætur sínar að rekja til stríða milli fíkniefnagengja.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.