ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Prófkjör Samfylkingar í Kraganum sagt í uppnámi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:49 › 15. mars 2009
Árni Páll Árnason varð í fyrsta sæti í prófkjörinu í Kraganum.

Árni Páll Árnason varð í fyrsta sæti í prófkjörinu í Kraganum. Mynd DV

Fjöldi manns sem taldi sig vera í Samfylkingunni reyndist ekki vera á kjörskrá þegar það ætlaði að greiða atkvæði í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi í gær. Um er að ræða tæplega 150 manns en svo gæti farið að röð frambjóðenda breytist ef atkvæðin, sem lýst voru ógild, verða talin með.

Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Helgi Pétursson formaður kjörstjórnar segist telja að fimm til átta atkvæði af þeim tæplega 150 hafi verið úrskurðuð gild. Óánægjan er sögð mikil meðal stuðningsmanna Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra í Hafnarfirði. Hann lenti í þriðja sæti í kjörinu en einungis munaði 57 atkvæðum milli hans og Árna Páls Árnasonar sem hlaut fyrsta sætið.

Búist er við að kjördæmaráðið skoði málið betur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.