ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Myrti fjóra og svipti sig lífi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:47 › 15. mars 2009
Maðurinn fór heim til sín og svipti sig lífi.

Maðurinn fór heim til sín og svipti sig lífi.

Karlmaður skaut fjóra til bana á fjölskyldusamkomu í Miami á Flórída í nótt áður en hann fór heim til sín og svipti sig lífi. Talið er að maðurinn hafi verið afbrýðisamur út í eiginkonu sína sem hafði nýverið farið frá honum.

Lögreglan fékk tilkynningu um skotárás í húsi skömmu eftir miðnætti í nótt. Þegar hún kom á vettvang fundust fjögur lík. Skömmu síðar fékk lögreglan tilkynningu um að skotum væri hleypt úr byssu skammt frá og að eldur væri laus í húsi. Var þar um að ræða morðingjann sem hafði svipt sig lífi.

Talið er að árásarmaðurinn sé af kúbverskum uppruna en samkvæmt frétt Fox News var hann reglusamur og ávallt í skilum varðandi greiðslur á íbúðinni sem hann leigði. Ekki liggur fyrir hvort fórnarlömbin tengist manninum en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafði eiginkona hans nýverið farið frá honum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.