ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Mörður: Stóð mig sjálfsagt ekki nógu vel

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:08 › 15. mars 2009
Mörður Árnason segir að niðurstaðan hafi ekki verið eftir væntingum.

Mörður Árnason segir að niðurstaðan hafi ekki verið eftir væntingum. Mynd DV

„Mér fannst allan tímann vera hálfgerður óraunveruleikablær yfir þessu prófkjörsstappi í kreppunni miðri, og hef sjálfsagt ekki staðið mig nógu vel í því sem þarf að standa sig vel í til að vera kosinn í prófkjöri,“ segir Mörður Árnason sem lenti í níunda sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í gær á bloggsíðu sinni.

Mörður segir að niðurstaðan hafi ekki verið eftir væntingum. Hann óskar engu að síður Jóhönnu Sigurðardóttur til hamingju með glæstan sigur í Reykjavíkurprófkjörinu og nýja fólkinu sem stóð sig vel, Sigríði Ingibjörgu, Skúla Helgasyni og Valgerði Bjarnadóttur.

„Í sporum Ellerts? var spurt í SMS-i í gærkvöld þegar úrslitin lágu fyrir, og væntanlega átt við 5. sæti norður. Kannski, og út af fyrir sig er það heiður fyrir mig að standa í sporum þeirrar glæstu æskuhetju minnar af Melavellinum. Vonandi bara maður skori þá! En þetta er ekki bindandi kosning, og má vera að aðrir hafi meiri áhuga á 5. norður en ég,“ segir Mörður.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.