„Núna er ég ekki bundinn af því að vera trúnaðarmaður í æðstu stöðum flokksins. Mér líður svolítið eins og Davíð leið þegar hann hætti í Seðlabankanum. Nú er ég frjáls og nú get ég talað,“ segir Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi varaformaður Frjálslynda flokksins. Magnús beið lægri hlut fyrir Guðjóni Arnari Kristjánssyni í formannsslag Frjálslynda flokksins í gær. Ásgerður Jóna Flosadóttir var kjörin varaformaður flokksins.
„Ég var búinn að ákveða að ég ætlaði ekki að halda áfram sem varaformaður. Hinsvegar þá ætlaði ég, áður en ég hætti, að varpa fram þeirri spurningu til landsþings flokksins, hver staða Guðjóns Arnars væri. Með þessu styrkti ég mjög stöðu Guðjóns. Núna er ekki hægt að segja að Guðjón njóti ekki trausts innan flokksins,“ segir Magnús en Guðjón hlaut 90 prósent atkvæða.
Magnús hafði starfað sem varaformaður flokksins í sex ár og fannst kominn tími til að hleypa öðrum að en honum var nýverið hafnað í prófkjöri flokksins í Norðvesturkjördæmi þar sem hann endaði í fjórða sæti.
Magnús segir að hann hafi ekki boðið sig fram gegn Guðjóni vegna þess að hann treysti ekki formanni sínum. Þvert á móti hafi hann viljað sjá hver staða hans væri, þar sem menn hafi verið með efasemdir um forystu hans og hvort hann nyti nægjanlegs trausts. Hann hafi allan tímann vitað að hann myndi aldrei leggja formanninn en hann viljað fá fram mælingu á styrk Guðjóns. Niðurstaðan sýni að hann njóti trausts.
Aðspurður hvort Magnús sé nokkuð á leið úr Frjálslynda flokknum segir hann: „Nei. Það hefur aldrei hvarflað að mér að fara úr flokknum.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun