Kristján Þór Júlíusson endaði í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Tryggvi Þór Herbertsson endaði í öðru sæti og Arnbjörg Sveinsdóttir í því þriðja. Kristján Þór fékk 1.477 atkvæði í fyrsta sætið en Tryggvi Þór 971 atkvæði.
3.949 voru á kjörskrá en 2.041 greiddu atkvæði. Kosningaþátttaka var því 51,7 prósent en auðir seðlar og ógildir voru 41. 10 manns buðu sig fram í prófkjörinu og kosið var um 6 efstu sætin.
Niðurstöður eru eftirfarandi:
1. í fyrsta sæti Kristján Þór Júlíusson með 1477 atkvæði
2. (í 1.–2. sæti) Tryggvi Þór Herbertsson með 971 atkvæði
3. (í 1.–3. sæti) Arnbjörg Sveinsdóttir með 868 atkvæði
4. (í 1.–4. sæti) Björn Ingimarsson með 816 atkvæði
5. (í 1.–5. sæti) Soffía Lárusdóttir með 999 atkvæði
6. (í 1.–6. sæti) Anna Guðný Guðmundsdóttir með 1220 atkvæði





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna