ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fritzl boðið lúxusfangelsi – Mannæta hótar að éta hann

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:37 › 15. mars 2009
Mikil reiði ríkir í Austurríki vegna "tilboðs" saksóknara.

Mikil reiði ríkir í Austurríki vegna "tilboðs" saksóknara.

Mikil reiði ríkir í Austurríki eftir að saksóknarar buðu kjallaraskrímslinu Josef Fritzl hálfgert lúxusfangelsi gegn því að hann áfrýji ekki þeim dómi sem kann að falla í máli hans. Geri hann það ekki fær hann sérfangaklefa í góðu fangelsi þar sem fangar geta meðal annars spilað tennis, fótbolta og stundað líkamsrækt með fullkomnum búnaði.

Fjölmiðlar hafa farið mikinn eftir að þetta spurðist út. Ritstjóri austurríska blaðsins Austrian Times skrifar meðal annars í leiðara í gær: „Þetta er mógðun við dóttir hans Elisabeth, sem þurfti að dúsa í gluggalausum kjallara með rottum, þar sem hún fékk enga hreyfingu eða nægjanlega næringu í 24 ár.“

Ef Fritzl neitar þessu samkomulagi gæti hann verið sendur í hámarksöryggisfangelsi í Austurríki, Goellersdorf fangelsið, sem hýsir marga af hættulegustu glæpamönnum landsins. Meðal fanga þar er mannætan Robert Ackermann en hann mun hafa hóta að leggja Fritzl sér til munns komi hann í fangelsið.

Fritzl vonast til þess að fá ekki lengri dóm en tíu ára fangelsi en það er hámarksrefsing í Austurríki fyrir nauðgun. Ólíklegt verður að teljast að Fritzl sleppi svo vel þar sem hann hefur verið ákærður fyrir manndráp, þrældóm og misnotkun – auk nauðgunar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.