ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Drap son sinn í þurrkara

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:13 › 15. mars 2009
  • Þriggja mánaða drengur lét lífið í þurrkara eftir að móðir hans hafði sett hann þar inn og kveikt á vélinni.

    Þriggja mánaða drengur lét lífið í þurrkara eftir að móðir hans hafði sett hann þar inn og kveikt á vélinni.

Bandarísk kona hefur verið fundin sek um morð af yfirlögðu ráði eftir að hún setti þriggja mánaða gamlan son sinn í þurrkara og kveikti á honum. Átti þetta sér stað í desember árið 2005 og dó barnið af áverkum sem það hlaut í þurrkaranum.

Lögregluþjónn sem kom á slysstað segir að barnið hafi hlotið höfuðáverka sem og annars og þriðja stigs bruna á rúmlega helming líkamans. Móðirin, sem átti einnig eins árs gamalt barn, var átján ára þegar atvikið átti sér stað.

Konan veit ekki enn þann dag í dag af hverju hún setti son sinn í þurrkara og kveikti á vélinni. Verjandi hennar reyndi að fá hana lausa og bar því við að hún væri andlega veik. Konan vildi sjálf meina að hún væri saklaus um morð af yfirlögðu ráði.

Fjölmargir af meðlimum kviðdómsins hafa lýst því yfir að vinna við málið hafi verið óþægileg. Í réttarhöldunum voru meðal annars sýndar myndir af barninu og áverkum þess eftir atvikið.

Búist er við að konan hljóti lífstíðarfangelsi en dómur í málinu fellur 25. mars næstkomandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.