Tónlistarmaðurinn og neytendavörðurinn Dr. Gunni er þessa dagana að undirbúa útgáfu á nýrri plötu. Platan ber það skemmtilega nafn Dr. Gunni inniheldur. Hann var staddur í „austantjaldslegum húsakynnum á Akranesi“ í dag þar sem svokölluð mastering á hljómplötunni fer fram.
„Um er að ræða eina bestu hljómplötu mína til þessa, 18 laga stórvirki sem þó nær ekki 40 mínútum í lengd. Afhverju að vera að hanga eitthvað yfir þessu? Hljómplatan kemur út fimmtudaginn 26. mars kl. 08.00. Boðið verður upp tvenns konar kaupleiðir: a) niðurhal á 1000 kall eða b) niðurhal (ef vill) + CD í veglegu umslagi á 2000 kall. Diskurinn, sem verður gefinn út í 300 tölusettum og árituðum eintökum, verður sendur heim til fólks. Hann mun eflaust fást í nokkrum plötubúðum líka. Þann 26. mars er nýtt tungl, svokallað páskatungl. Dagurinn er líka þjóðhátíðardagur Bangladesh, Prins Kuhio dagurinn á Hawaii og andlátsdagur Nikki Sudden, gítarleikara Swell Maps (2006),“ segir Dr. Gunni á bloggsíðu sinni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum