Stephen E. Quick og Samantha Light frá Veedersburg í Indiana eiga yfir höfði sér margra ára fangelsi eftir að upp komst að þau höfðu misnotað börn kynferðislega. Parið tók meðal annars upp ljósmyndir og myndbönd af sjálfum sér í kynferðislegum stellingum með börnum.
Lögreglan hóf rannsókn á málinu í kjölfar þess að móðir þriggja ára stúlku hafði samband. Dóttir hennar hafði sagt henni að parið hefði tekið myndir af sér nakinni og snert sig á óæskilegum stöðum. Grunur leikur á að fjögur börn í það heila hafi mátt þola misnotkun, þau eru á aldrinum tveggja mánaða til sex ára.
„Á þeim fimmtán erum sem ég hef starfað sem lögregluþjónn er þetta það versta sem ég hef séð. Þetta er hræðilegt, alveg hræðilegt,“ segir Bon Kemp, lögreglumaður sem rannsakar málið í samtali við Fox News.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu