ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Ósáttur við RÚV og segir Jón Baldvin pappírstígrisdýr

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:20 › 15. mars 2009
Björn er ósáttur við fréttamennsku RÚV.

Björn er ósáttur við fréttamennsku RÚV.

  • Pappírstígrisdýr?

    Pappírstígrisdýr?

„Útreið Jóns Baldvins í Reykjavíkurprófkjörinu, þar sem hann vermdi eitt af neðstu sætunum, breytir honum í pappírstígrisdýr í hugsanlegum formannsslag,“ segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra um niðurstöðuna í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík á heimasíðu sinni.

Björn gerir einnig frétt Stöðvar 2 frá því í kvöld að umtali þess efnis að hugsanlega verði atkvæðin sem féllu í prófkjöri Samfylkingarinnr í Kraganum endurtalin. „Árni Páll Árnason, lýstur sigurvegari í prófkjörinu, vill varla, að óvissa ríki um umboð hans og hlýtur að samþykkja endurtalningu með öllum atkvæðum.“

Björn sakar einnig Ríkissjónvarpið um að stunda litaða fréttamennsku. „Árni Páll fer hins vegar ekki að neinum almennum leikreglum eins og sannaðist á þeim orðum, sem hann flutti meðal samfylkingarfólks í kjördæmi sínu að prófkjöri loknu, þegar hann hóf árásir á Sjálfstæðisflokkinn og mótframbjóðendur sína í honum með þeim orðum, að þar væri „sama stefnuleysið í nýjum pakkningum“. Er undarlegt, að sjónvarp ríkisins sendi slíkan óhróður frá sér, án þess að gefa þeim færi á að svara, sem að er veist. Hitt er ekki síður sérkennilegt, að sjónvarpið segi frá úrslitum í prófkjöri sjálfstæðismanna í upphafi frétta með borða, þar sem á stendur: Lítillækkandi undir myndum af frambjóðendum. Sé þetta ekki lituð fréttamennska, er erfitt að finna hana.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.