ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Birkir sigraði Höskuld

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:34 › 15. mars 2009

Birkir Jón Jónsson alþingismaður sigraði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Þetta var tilkynnt rétt fyrir klukkan 19.30 í kvöld. Höskuldur Þórhallsson, helsti keppinautur Birkis um fyrsta sætið, varð í öðru sæti og Hulda Aðalbjarnardóttir varð í þriðja sæti.

Framsóknarflokkurinn fékk þrjá menn kjörna í þingkosningunum árið 2007.

Niðurstaðan í heild sinni:

1. Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, með 505 atkvæði í 1. sæti.
2. Höskuldur Þór Þórhallsson, alþingismaður, með 647 atkvæði í 1.-2. sæti.
3. Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings, með 509 atkvæði í 1.-3. sæti.
4. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri, með 340 atkvæði í 1.-4. sæti.
5. Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi, með 448 atkvæði í 1.-5. sæti.
6. Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa, með 463 atkvæði í 1.-6. sæti.
7. Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður, með 497 atkvæði í 1.-7. sæti.
8. Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari,með 397 atkvæði í 1.-8. sæti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.