Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Þórlindur Kjartansson unnu við markaðsrannsóknir fyrir Icesave áður en bankinn var ríkisvæddur. Markmið Landsbankans var að bjóða upp á Icesave í öðrum löndum en Bretlandi og Hollandi og unnu Erla Ósk og Þórlindur við að kanna möguleikana á því. Þau eru bæði frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer á laugardaginn.
Verksvið þeirra var að kanna hvort grundvöllur væri fyrir því að fara með Icesave-reikningana til annarra landa en til Bretlands og Hollands, meðal annars til Noregs. Erla og Þórlindur segja að þó hafi aldrei orðið af frekari útbreiðslu Icesave til annarra landa þar sem bankinn hafi verið ríkisvæddur áður en til þess kom.
Erla Ósk segir að hún vinni og hafi fyrir efnahagshrunið í haust unnið í markaðsdeild Landsbankans.
Síðustu þrjá mánuðina fyrir ríkisvæðingu bankans vann hún að markaðsrannsóknum þar sem kannað var hvort grundvöllur væri fyrir því að opna Icesave-reikningana í öðrum löndum.





Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“