Einkahlutafélag í eigu þáverandi forstjóra fjárfestingabankans Askar Capital, Tryggva Þórs Herbertssonar, fékk 150 milljóna kúlulán frá bankanum til að kaupa hlutabréf í bankanum sjálfum árið 2007. Tryggvi Þór seldi síðan einkahlutafélagið til Askar þegar hann hætti hjá bankanum í fyrrasumar og skildi skuldirnar af lánunum eftir inni í félaginu. Vilhjálmur Bjarnason segir að slíkir viðskiptahættir hafi leitt til hruns íslensku bankanna.
Varnagli, einkahlutafélag í eigu Tryggva Þórs Herbertssonar, fékk 150 milljóna króna lán frá Askar Capital árið 2007 til að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu. Tryggvi Þór var þá forstjóri fyrirtækisins. Veðið fyrir láninu var í hlutabréfunum sjálfum og var 50 prósent af andvirði þeirra. Hann fékk jafnframt 150 milljóna króna lán frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Askar.
Tryggvi Þór, sem er prófessor við Háskólann í Reykjavík og þátttakandi í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, staðfestir þetta í samtali við DV.
Tryggvi Þór bloggaði um málið í gær eftir að DV hafði haft samband við hann út af láninu.
Bloggsíða Tryggva Þórs Herbertssonar á Eyjunni



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
