Davíð Oddson mun ekki verða að tilmælum Jóhönnu um að víkja sem formaður bankastjórnar Seðlabankans.
Davíð Oddsson hefur svarað bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, þar sem farið var þess á leit að hann og aðrir seðlabankastjórar víki frá störfum hið fyrsta á þá leið að hann fari ekki fet. Hann segist aldrei hafa hlaupist frá neinu verki sem hann hafi tekið að sér og muni ekki heldur gera það nú.
Í fjögurra síðna svarbréfi sem birtist í dag á vefsíðu Seðlabankans segir Davíð að honum hafi staðið hugur til að svara bréfinu ekki yfir höfuð. Hann segir bréfið sem sér hafi borist hafa verið kynnt í áróðursskyni áður en honum hafi gefist tækifæri til að lesa það.
„Bréf af þessu tagi með lítt dulbúnum hótunum til embættismanna er einsdæmi, ekki eingöngu hér á landi, heldur einnig um allan hinn vestræna heim. Lög sem eiga að tryggja sjálfstæði seðlabanka og forða pólitískri aðför að seðlabankastjórninni hafa nú verið þverbrotin. Ábyrgð ráðherrans er því mikil,“ skrifar Davíð.
Brýtur allar venjur
Davíð setur út á bréfið sem honum barst og segir það bera öll merki þess að hafa verið ritað utan ráðuneytisins. „Það brýtur allar venjur um embættisleg bréf af þessu tagi,“ skrifar Davíð. Enn heldur Davíð áfram og gefur lítið fyrir þau rök að hann sé ekki hæfur til að gegna þessu embætti sökum þess að hann sé ekki hagfræðingur að mennt.
Áróðurs- og hótunarbréf sem ber að harma
„Ráðuneytisstjórinn, sem ýtt var út úr ráðuneytinu, er einn kunnasti hagfræðingur landsins og fyrrverandi forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar. Í stað hans kom lögfræðingur, en í bréfi ráðherrans virðist það helst fundið formanni bankastjórnar Seðlabankans til foráttu að hann sé lögfræðingur ekki hagfræðingur,“ skrifar Davíð og segir það aldrei hafa tíðkast að bréf sem send eru embættismönnum séu birt áður en viðkomandi fær tækifæri til að svara þeim. „Hvað þá áður en hann fær tækifæri til að lesa þau. Bréf þetta virðist því eingöngu hafa verið hugsað sem áróðurs- og hótunarbréf og ber að harma það,“ heldur Davíð áfram.
Líkir orðalagi við þjóðernishreinsanir
Davíð gefur ískyggilega til kynna að orðfæri Jóhönnu og samráðherra hennar undanfarnar vikur, þess efnis að nauðsynlegt sé að „hreinsanir“ eigi sér stað í embættum, minni frekar á orðfæri Hitlers. „Þetta orðalag tíðkaðist á tilteknum stöðum á síðustu öld og er ótrúlegt að ráðherrar noti slíkt orðalag gagnvart embættismönnum á Íslandi í upphafi 21. alda,“ skrifar Davíð harðorður.
Ítarlegt svarbréf Davíðs Oddssonar má lesa hér.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir