Íslendingar þekkja Guðmund Bragason einna helst úr sjónvarpinu en hann kynnti okkur dagskrá kvöldsins í Ríkissjónvarpinu um tíma. Í dag kynnir hann Íslendinga fyrir nanó-tækniplástrum sem sagðir eru gera ótrúlega hluti fyrir mannslíkamann og eiga að geta læknað hina ýmsu kvilla eins og mígreni og svefntruflanir.
„Ég verð alltaf jafnhissa þegar ég sé plástrana virka, en þó ekki. Núna býst ég bara við árangri,“ segir Guðmundur Bragason, fyrrverandi sjónvarpsþula sem vinnur á fullu við að kynna Íslendinga fyrir nanó-tækniplástrunum LifeWave sem hann segir vinna ótrúlega hluti á líkamanum.
Að sögn Guðmundar vinna plástrarnir með mismunandi orkusvæði líkamans. „Það eru engin efni sem fara inn í líkamann heldur byggist þetta á örvun rafsegulsviða líkamans. Plástrarnir vinna með orkupunkta líkamans með svipaðri aðferðafræði og svæðanudd og nálastungur gera,“ útskýrir Guðmundur.
Til eru fimm tegundir af plástrum, allir með mismunandi virkni, eins og orku og liðleika, verkjastillir, svefntruflanir, lystarstjórn og uppbyggingu og detox. „Þetta er 12 tíma stanslaus örvun á líkamann. Rétt tíðni fer inn í kerfið og inn í frumurnar og ber þannig skilaboð til líkamans með ótrúlegum árangri,“ útskýrir Guðmundur.
Nánar í DV í dag.





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða