ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Katrín setur Gunnar Birgisson af

innblad@dv.is
17:04 › 4. febrúar 2009
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur af fulltrúa ríkisins í stjórn LÍN

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur af fulltrúa ríkisins í stjórn LÍN Mynd: DV - Rakel Ósk Sigurðardóttir

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur látið fulltrúa ráðuneytisins í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna, vita að hún muni skipa nýja fulltrúa fyrir sína hönd fyrir lok vikunnar. Fráfarandi formaður er Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, en hann hefur veitt stjórninni formennsku síðan haustið 1991.

Katrín segir að ný stjórn mun fara yfir allar úthlutunarreglur. Einnig verði ráðist í heildarendurskoðun á lögum um lánasjóðinn en það sé langtímaaðgerð. „Ég hef talað fyrir því að teknar verði upp samtímagreiðslur í stað þess yfirdráttarkerfis sem hefur verið í gildi síðustu árin. Við höfum verið með kerfi þar sem nemendur taka yfirdráttarlán með 19 til 20% vöxtum og fá síðan vaxtastyrk frá ríkinu til að greiða þá niður. Mér þykir full ástæða til að endurskoða slíkt kerfi.“ segir Katrín.

Á annað hundrað námsmenn höfðu um síðustu áramót beðið afgreiðslu neyðarlána sem menntamálanefnd Alþingis og menntamálaráðuneytið lofuðu námsmönnum eftir bankahrunið og fall krónunnar á síðasta ári. LÍN túlkaði umsóknirnar þröngt og höfðu aðeins 7 af 130 hlotið náð fyrir sjóðnum um og eftir síðustu áramót þegar málið komst í hámæli í fjölmiðlum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?