Gunnar Ólafsson verktaki skrifaði Gunnari Birgissyni, bæjarstjóra í Kópavogi, harðort bréf þar sem bæjarstjórinn er vændur um fjárkúgun. Í bréfinu er Gunnar sagður hafa misnotað aðstöðu sína sem bæjarfulltrúi í Kópavogi til að hygla fyrirtæki sínu Klæðningu við byggingu Fífunnar. Gunnar Birgisson segir ásakanirnar í bréfinu vera „bull og vitleysu“.
„Við byggðum knatthúsið í Smáranum og rétt er að rifja upp að við áttum ekki lægsta tilboð en þar sem við vorum sennilegast auðveldustu mennirnir til að stilla upp við vegg og stuðla þannig að því að þú fengir sjálfur jarðvinnu verksins. En það átti eftir að draga dilk á eftir sér eins og í flestum tilfellum þegar Klæðning var að störfum fyrir okkur það var ávallt einhver auka skattur lagður á þau verk af þínum geðþótta,“ segir Gunnar Ólafsson, eigandi byggingafélagsins ÓGBYGG sem byggði knatthúsið í Smáranum sem síðar hlaut nafnið Fífan.
Þetta kemur fram í bréfi sem Gunnar Ólafsson skrifaði Gunnari Birgissyni, bæjarstjóra í Kópavogi, í júlí árið 2005 - rúmum mánuði eftir að Gunnar Birgisson tók við sem bæjarstjóri. Gunnar Birgisson hafði verið bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þar á undan.





Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“