Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Svein Harald Öygard seðlabankastjóri situr nú fund með Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í Seðlabankanum. Stoltenberg er staddur hér á landi vegna norrænnar ráðstefnu í tengslum við fjármálakreppuna en Stoltenberg átti meðal annars fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, í gær.
Svein Harald sagði við blaðamenn að sér þætti það mikill heiður að Stoltenberg væri hans fyrsti gestur í Seðlabankann. Hann sagði að loknum blaðamannafundi í Seðlabankanum í morgun að það væri algjör tilviljun að þeir væru staddir hér á landi á sama tíma. Þeir sögðust vera gamlir skólabræður og hagfræðingar. Jens Stoltenberg ætlar að ræða við blaðamenn að loknum fundi hans og Öygard.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“