Valdatíð Eimreiðarhópsins, sem ráðið hefur lögum og lofum í Sjálfstæðisflokknum og landinu síðatliðinn tuttugu ár, er lokið með fráhvarfi Davíðs Oddssonar, Geirs H. Haarde og Kjartans Gunnarssonar úr valdastöðum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að Eimreiðarhópurinn hafi átt þátt í því að hugmyndafræðilegt forræði á Íslandi hafi farið frá vinstrimönnum yfir til hægri manna á áttunda áratugnum. Jón Magnússon yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn eftir valdatöku Eimreiðarmanna en er nú genginn aftur í flokkinn. Jón bindur vonir við að flokkurinn verði aftur eins og hann var fyrir frjálshyggjuvæðinguna.
Hópur sjálfstæðismanna sem kenndur hefur verið við tímaritið Eimreiðina náði forystu í Sjálfstæðisflokknum undir lok níunda áratugs síðustu síðustu aldar við valdatöku Þorsteins Pálssonar og síðar Davíðs Oddssonar. Hópurinn hefur haldið völdum í Sjálfstæðisflokknum æ síðan og verið valdamikill á Íslandi í gegnum ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
