ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Davíð yrði góður ritstjóri

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:21 › 27. febrúar 2009
Óskar Magnússon, nýr eigandi Árvakurs, telur að Davíð Oddsson yrðir mjög góður ritstjóri.

Óskar Magnússon, nýr eigandi Árvakurs, telur að Davíð Oddsson yrðir mjög góður ritstjóri.

  • Ritstjórinn Davíð Oddsson?

    Ritstjórinn Davíð Oddsson?

Óskar Magnússon, lögmaður og eigandi Þórsmerkur ehf. sem keypt hefur Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, segir aðspurður að hann hafi hafi ekki farið fram á neinar skuldaafskriftir frá Íslandsbanka. Hann segir að Þórsmörk hafi tekið yfir skuldir Árvakurs og að Íslandsbanki þurfi að ákveða hversu mikið af skuldum fyrirtækisins verði afskrifað.

Óskar segir að fyrirtækið hyggi ekki á mannabreytingar á Morgunblaðinu. „Við höfum engin áform um mannabreytingar á Morgunblaðinu,“ segir Óskar. Aðspurður hvort Davíð Oddsson muni taka við ritstjórastólnum segir Óskar. „Hann yrði örugglega mjög góður ritstjóri.“

Samkvæmt heimildum DV er Ólafur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins, ánægður með nýju hluthafana í Árvakri og að óvissunni um framtíð félagsins hafi nú verið eytt. Vel fer á með Ólafi og Óskari Magnússyni, samkvæmt heimildum DV, og mun Ólafur ekki hafa áhyggjur af því að hann missi ritstjórastarfið þó að nýir eigendur hafi eignast Árvakur.

Allt um afskriftir skulda og framtíð Morgunblaðsins í helgarblaði DV sem komið er út


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.