ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Sirrý býður sig fram til Alþingis

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:46 › 23. febrúar 2009
Sirrý hefur ákveðið að gefa kost á sér fyrir Samfylkinguna í Reykjavík.

Sirrý hefur ákveðið að gefa kost á sér fyrir Samfylkinguna í Reykjavík.

Fjölmiðlakonan Sirrý hefur ákveðið að bjóða sig fram til Alþingis fyrir komandi kosningar. Hún gefur kost á sér í 5.-6.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.

SigríðurArnardóttir, eða Sirrý, er menntuð í félags- og fjölmiðlafræði og hefur starfað á fjölmiðlum sem sjónvarpskona, útvarpskona, blaðamaður og ritstjóri. Hún hefur tekið viðtöl við og hlustað á fólkið í landinu í 23 ár og telur að á Alþingi eigi að sitja fulltrúar allra þjóðfélagshópa og að þingmenn eigi að hlusta og vera í virkum tengslum við umbjóðendur sína.

Sigríður hefur lengst af starfað við fjölmiðla, en einnig við verslunarstörf, skógrækt og fararstjórn. Undanfarin misseri hefur Sigríður verið sjálfstæður atvinnurekandi og þjálfað stóra hópa fólks í að tjá sig af öryggi, m.a. atvinnulaust fólk og trúnaðarmenn innan samtaka launafólks

Hún er 43ja ára, gift Kristjáni Franklín Magnús leikara og á tvo syni.

„Ég hef alla mína tíð verið jafnaðarmaður. Helstu áhugamál mín eru á sviði menningar- og velferðarmála. Aukin atvinnutækifæri, jöfn tækifæri til menntunar og heilsugæslu og blómlegt íþrótta- og menningarlíf fyrir alla eru mín hjartans mál. Ég mun hafa hag barnafjölskyldna í fyrsta sæti og vinna að því að hér ríki réttlátt lýðræðissamfélag þar sem æskan og ellin eiga öruggt skjól,“ segir hún.

„Ég fagna þeirri opnu þjóðfélagsumræðu sem orðið hefur síðan í bankahruninu og tel að út úr kreppunni geti, með tíð og tíma, komið betra samfélag ef ráðamenn vinna með og fyrir þjóðina. Þeir sem bera ábyrgð á efnahagslegum hamförum af mannavöldum með gróðafíkn sinni eiga að axla ábyrgð. Nú þarf að hleypa að nýju fólki í ábyrgðarstöður.“

„Við þurfum að endurvekja eðlislæga bjartsýni landsmanna og vinna að því að endurskapa traust milli þings og þjóðar,“ segir Sirrý.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.