Eitri var komið fyrir í fæðubótarefni sem Árni Johnsen þingmaður tók á tímabili og þannig eitrað fyrir honum. Þeir sem hitt hafa Árna á síðustu árum hafa tekið eftir því að hendur hans eru bólgnar og neglurnar illa farnar. Sögusagnir hafa gengið manna á milli um að eitrað hafi verið fyrir honum en Árni hefur aldrei viljað ræða þennan orðróm opinberlega. Þar til nú.
„Þeir sem best þekkja til telja það alveg á hreinu að það var eitrað fyrir mér. Þetta þýddi að ég fékk bólgur á hendurnar. Þetta gerði mér þó ekkert annað. Þetta var bara leiðinlegt. Síðan fór ég í afeitrunarmeðferð til Póllands og hún svínvirkaði. Læknirinn sem stjórnar meðferðinni þar þurfti ekki einu sinni að spyrja mig. Hún sagði mér bara hvað kom fyrir. Ég sagði henni aldrei neitt,“ segir Árni.
Hann hafði lengi grunað að eitrað hefði verið fyrir honum en enn þann dag í dag getur hann ekki sannað hver þar var að verki. Spurður hvort einhver liggi undir grun segir Árni: „Ég geri mér auðvitað ákveðnar hugmyndir um það, en meira er ekki hægt að segja. Ég get ekki sannað neitt. En það var eitrað fyrir mér. Það er mér sagt.“
Eins og fyrr segir var eitrinu komið fyrir í fæðubótarefni sem Árni tók. „Þetta var bara fæðubótarefni sem er hrært út í mjólk eða vatn, í staðinn fyrir máltíð. Mér til láns notaði ég þetta mjög lítið, kannski í hlutfallinu þrisvar í staðinn fyrir þrjátíu og fimm sinnum.“





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða