ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Verða að sameinast um einn flokk

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:12 › 2. febrúar 2009
DV-mynd AME

„Andófsfólk, sem vill berjast í pólitík, verður að koma sér saman um einn flokk. Bezt er, að sá flokkur sé á sama stað í litrófinu og Samfylkingin og Framsókn. Þar eru beztu fiskimiðin um þessar mundir,“ segir Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, um hið pólitíska landslag í aðdraganda kosninga.

Jónas fjallar um það á vef sínum hvernig ný framboð geta barist í aðdraganda kosninga. Hann segir fjórflokkinn halda. Reynslan sýni að það sé pláss fyrir einn flokk að auki en ekki fleiri. „Íslandshreyfingin fiskaði ekki í síðustu kosningum, þótt málefnin væru góð. Hún hefur ekki fengið neinn hljómgrunn í skoðanakönnunum. Frjálslyndi flokkurinn slefaði inn á þing, en nær samkvæmt könnunum ekki inn manni í apríl. Fullreynt er með þessa tvo flokka, fiskuðu ekki í stjórnarandstöðu.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.