Byggingafélag Námsmanna hefur ákveðið að bregðast við verðlagsþróun á leigumarkaðnum, með því að veita 10 prósenta afslátt af leiguverði á íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu.
Leiguíbúðir Byggingafélags Námsmanna eru bundnar byggingavísitölu og hafa hækkað í hverjum mánuði að undanförnu. Fjöldi leigjenda hefur að undanförnu sagt upp leigusamningum sínum vegna hækkandi verðs og standa íbúðir auðar í fyrsta skipti í áraraðir. Fyrir aðeins hálfu ári síðan var margra mánaða biðlisti eftir íbúðum hjá BN.
Í frétt á vef BN, segir að stjórn félagsins vonast er til þess að þessi leigulækkun verði til þess að námsmenn sjái sér fært að leigja íbúðir af BN á þessu svæði. Núverandi ástand á leigumarkaði er væntanlega tímabundið. Mikilvægt er fyrir BN að nýting á íbúðum félagsins sé sem best þannig að hægt sé að veita sem bestu leigukjör hverju sinni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð