Táfýlan sigraði á endanum. Erasmus háskólanum var ekki heimilt að banna nemanda að mæta í tíma sökum táfýlu.
Teunis Tenbrook, hollenskur heimspekinemi við Erasmus háskólann í Rotterdam, hefur unnið sigur í dómsmáli sínu gegn skólayfirvöldum eftir tíu löng ár. Fyrir tíu árum síðan þótti of svæsin táfýla af Tenbrook til að hann fengi að sitja tíma við skólann. Nú hefur dómstóll komist að þeirri niðurstöðu að ómögulegt sé að meina nemenda að sitja kúrsa sökum táfýlu.
Það voru prófessorar og samnemendur Tenbrook sem kvörtuðu á sínum tíma og sögðu gjörsamlega ómögulegt að vera innan um bífurnar á manninum.
„Sameiginlegt álit okkar er það að prófessorar og aðrir nemendur verði héðan í frá bara að halda fyrir nefið og láta sig hafa það,“ sagði einn af dómurunum í málinu.
„Þrátt fyrir að vera bannað að mæta í tíma reyndi ég að halda námi mínu áfram á bókasafni skólans. En síðan var mér bannað að koma þangað líka,“ sagði Tenbrook með táfýluna, sem greinilega hefur mátt reyna ýmiskonar mismunum sökum ólyktarinnar.
Bókasafnið græðir hins vegar á þessu, því nú getur Tenbrook skilað öllum þeim bókum sem hann var með í láni áður en hann var bannaður.
Erasmus skólinn hefur hins vegar brugðist við úrskurðinum. Fyrst ekki má banna nemanda að sitja tíma sökum táfýlu, munu nemendur nú verða sektaðir til að taka á uppákomum sem þessum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu