Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Maður hlaut annars stigs brunasár í vikunni eftir að hafa verið á göngu á nýja hverasvæðinu í Grændal norðan við Hveragerði. Maðurinn brenndist á fæti er jarðvegur gaf sig undan færi hans svo hann sökk til hnés í sjóðheitan hver sem leyndist undir torfunni.
Er talið manninum til happs að hann var í stígvélum en hann var einn á ferð. 45 mínútna ganga var til byggða og náði maðurinn að kæla brunasárið af og til með snjó. Hann var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi til frekari aðhlynninga.
Segir í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi að af þessu megi sjá að eftir stóra jarðskjálftann í maí 2008 sé svæðið á þessum slóðum varhugavert og full ástæða sé til að fara um það með gát.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð